Skilmálar
Skilmálar þessir gilda um sölu á vörum frá netverslun Altex.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annarsvegar og kaupanda hinsvegar. Sé kaupandi neytandi í skilningi 3. mgr. 1. gr. laga nr. 48/2003 um neytendakaup og ákvæði þeirra laga eru kaupanda hagstæðari en ákvæði þessara skilmála, þá skulu þau gilda framar ósamrýmanlegum ákvæðum skilmálanna. Sé kaupandi lögaðili þá gilda ákvæði laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup. Kaupandi samþykkir skilmála þessa þegar gengið er frá kaupum í netverslun Altex.is og eru þeir grundvöllur viðskipta.
Upplýsingar um seljanda og kaupanda
Seljandi er Altex ehf., kt. 711013-0670, Sundaborg 5, 104 Reykjavík. VSK númer: 115342.
Kaupandi er sá sem skráður er á reikning gefnum út af seljanda.
Verð og verðbreytingar
Öll verð á síðunni eru uppgefin í íslenskum krónum og innihalda 24% virðisaukaskatt. Altex.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Greiðslur og reikningar
Í netverslun altex.is er boðið uppá að greiða með öllum helstu greiðslukortum þar sem greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Teya Iceland hf. Útprentaður reikningur er sendur með vöru.
Afhending vöru
Vara er send næsta virka dag eftir að greiðsla hefur verið staðfest. Kaupandi getur valið að fá vöruna senda með Íslandspósti eða Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu vörunnar. Viljir þú fá vöruna senda með Íslandspósti þá bætast við 1.690 krónur í fast sendingargjald. Viljir þú fá vöruna senda með Dropp þá bætist við sendingargjald samkvæmt verðskrá Dropp.
Gallaðar vörur
Ef þú hefur fengið gallaða eða ranga vöru, sendu okkur hana til baka og við greiðum að sjálfsögðu sendingarkostnaðinn. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að leiðrétta slík mistök.
Skilafrestur
Það er öruggt og þægilegt að versla hjá Altex.is. Engri sölu er lokið fyrr en þú hefur séð vöruna og samþykkt hana. Frestur til að skila eða skipta vöru eru 14 dagar frá afhendingu. Við skil á vöru er miðað við verð samkvæmt útgefnum reikningi og er varan endurgreidd að fullu. Sendingarkostnaður við að skila vöru er greiddur af kaupanda. Skilyrði er að varan sé ónotuð og í upprunalegu ástandi og að kvittun/reikningur fylgi með. ATH: Gildir ekki um nærfatnað, sundfatnað og sokka. Endurgreiðsla er framkvæmd inn á kreditkort innan þriggja virkra daga.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.